Rúmur hálfur milljarður í leigu skólabygginga á tveimur árum Sveinn Arnarsson skrifar 11. nóvember 2017 07:00 Áslandsskóli auk leikskólanna Tjarnaráss og Hörðuvalla er í eigu félagsins FM húsa. Vísir/anton brink
Hafnarfjarðarbær greiddi FM húsum ehf. rúmlega 530 milljónir króna árin 2015 og 2016 vegna leigu á skólahúsnæði í eigu fyrirtækisins. Þetta kemur fram í bókhaldi Hafnarfjarðarbæjar sem sveitarfélagið gerði opinbert fyrr á þessu ári. Samningar standa yfir við nýja eigendur FM húsa um breytingar á samningi við Hafnarfjarðarbæ. Hafnarfjarðarbær opinberaði bókhald sitt á þessu ári fyrir árin 2015 og 2016. Tveir stærstu birgjar sveitarfélagsins eru FM hús sem á fasteignina sem Áslandsskóli er í auk leikskólanna Tjarnaráss og Hörðuvalla. Á þessum tveimur árum greiddi sveitarfélagið samtals 533.391.450 krónur til fyrirtækisins á grunni samnings milli aðila frá árinu 2000.Haraldur Líndal Haraldsson, bæjarstjóri.HafnarfjarðarHúsnæðismál Áslandsskóla hafa oft verið rædd í stjórnkerfi bæjarins. Á fundi bæjarráðs í upphafi árs var málið til umfjöllunar og áréttaði bæjarráð þá bókun sína frá því í desember 2016 þess efnis að bæjarstjóri leiti samninga við fyrirtækið um að Hafnarfjarðarbær leysi til sín þær fasteignir FM húsa sem bundnar eru leigu- og þjónustusamningum við bæinn. Náist ekki samningar þar um rennur samningur við FM hús út árið 2027. Haraldur Líndal Haraldsson segir bæjarlögmann og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs hafa setið fundi milli bæjarins og FM húsa til að ná samkomulagi um breytingar á samningnum. Sú vinna sé í gangi innan stjórnkerfisins.Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúiAdda María Jóhannsdóttir, fulltrúi Samfylkingar í minnihluta Hafnarfjarðarbæjar, segir þennan samning afar óhagstæðan fyrir sveitarfélagið og þegar allt sé skoðað hafi bæjarsjóður greitt margfalt verð fyrir byggingu skólans. „Þetta fyrirkomulag hefur reynst dýrt fyrir Hafnarfjörð og því mikilvægt að leysa til sín húsin og læra af þessu,“ segir Adda María. Fasteignafélagið Reginn og VíS keyptu um helmingshlut í FM húsum í lok árs 2016. Þau kaup komu Hafnarfirði í opna skjöldu en með þeim kaupum eignaðist Reginn þrjár skólabyggingar í Hafnarfirði. Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs, vildi ekki ræða málefnið við Fréttablaðið þegar eftir því var leitað.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Sjá meira