Erlent

Snör viðbrögð bílstjóra afstýrðu hörmulegu slysi

Atli Ísleifsson skrifar
Eigandi bílsins sem náði atvikinu á myndband segist hafa birt myndbandið til að brýna fyrir fólki að fara varlega í aðstæðum sem þessum.
Eigandi bílsins sem náði atvikinu á myndband segist hafa birt myndbandið til að brýna fyrir fólki að fara varlega í aðstæðum sem þessum.
Snör viðbrögð bílstjóra vörubíls komu í veg fyrir að börn urðu fyrir bíl í Høyanger í Noregi í sumar. NRK birti um helgina myndband úr bíl sem náði atvikinu á myndband.

Á myndbandinu má sjá þegar fimm börn fara út úr rútu og fara tvö þeirra strax yfir götuna fyrir aftan rútuna án þess að líta almennilega til hægri.

Á sömu stundu kemur vöruflutningabíll aðvífandi og má þakka snörum viðbrögðum bílstjórans að ekki fór verr.

Eigandi bílsins sem náði atvikinu á myndband segist í samtali við NRK hafa ákveðið að birta myndbandið til að brýna fyrir fólki að fara varlega í aðstæðum sem þessum.

Sjá má myndbandið að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×