Innlent

Hættulegar holur á Holtinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Manirnar eru neðst í Holtunum, rétt við Reykjanesbraut, þar sem koma á upp hljóðmön.
Manirnar eru neðst í Holtunum, rétt við Reykjanesbraut, þar sem koma á upp hljóðmön. Vísir/Anton Brink
Íbúar á Holtinu í Hafnarfirði eru hreint ekki sáttir með frágang vegna vinnu við gerð hljóðmanar við Byggðabraut. Þar hafa áltunnur verið steyptar í jörðina og standa steypustyrktarjárn upp úr þeim með tilheyrandi slysahættu.

Verkið er á vegum Vegagerðarinnar en þegar fréttastofa leitaði upplýsinga um málið í gær kannaðist upplýsingafulltrúi ekki við áhyggjur íbúa á Holtinu.

Vísir/Anton Brink
„Stórhættulegt bara! Hvolpurinn minn var aðeins utan við sig og steig þarna ofan í með einn fót. Hlaut ekki skaða en mér brá mikið þegar ég sá hvað var þarna ofan í,“ sagði Kolbrún Arna Sigurðardóttir, íbúi í Holtinu, sem vakti athygli nágranna sinna á málinu í Facebook-hópnum Holtið mitt í gær. Henni taldist til að holurnar væru um fimmtán samanlagt.

Hafnarfjarðarbær svaraði ósáttum íbúum í Facebook-grúppunni í gærkvöldi og benti á að Vegagerðin bæri ábyrgð á holunum. Vonir stæðu til að málið yrði lagað hið snarasta, líklega strax í dag. Ekki voru þó allir íbúar í Holtinu sáttir við svör bæjarins á Facebook og létu bæjaryfirvöld heyra það.

Hafnarfjarðarbær sagðist sár vegna gagnrýni sem bærinn fékk í einu innleggi í hópnum.

„Voruð þið „sár“? Þið Hafnarfjarðarbær? Mér finnst ósmekklegt að rita svona nokkuð í nafnleysi enda augljóst mál að þið Hafnarfjarðarbær yrðuð sárari ef úr þessu yrði slys. Þetta er meira en tilefni til að láta vita og vona svo eitthvað. Þetta er tilefni til að krefjast lagfæringar strax,“ sagði einn íbúi íbúi í hópnum og tóku fleiri undir skoðun hans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×