Fótbolti

Litaði á sér hárið og lítur nú alveg út eins og Reus | Mynd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Robert Lewandowski og Marco Reus náðu vel saman hjá Dortmund á sínum tíma.
Robert Lewandowski og Marco Reus náðu vel saman hjá Dortmund á sínum tíma. vísir/getty
Robert Lewandowski, einn besti framherji heims, hefur litað á sér hárið.

Það er ekki fréttnæmt nema fyrir þær sakir að Lewandowski lítur núna nánast alveg út eins og Marcus Reus, fyrrverandi samherji sinn hjá Borussia Dortmund, eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Það er þó ekkert líkt með því sem þeir félagar hafa gert inni á vellinum á tímabilinu.

Lewandowski skorar og skorar, bæði fyrir Bayern München og pólska landsliðið.

Reus hefur hins vegar ekki spilað mínútu með Dortmund á tímabilinu vegna meiðsla.

Sometimes you need to change something

A post shared by Robert Lewandowski (@_rl9) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×