Fótbolti

Sara skoraði í Meistaradeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sara Björk fagnar með liðsfélögum sínum.
Sara Björk fagnar með liðsfélögum sínum. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir var á skotskónum í kvöld er lið hennar, Wolfsburg, tryggði sér farseðilinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Wolfsburg gerði þá 3-3 jafntefli gegn Fiorentina en vann rimmu liðanna 7-3 samanlagt. Sara skoraði þriðja mark þýska liðsins í leiknum á 71. mínútu en hún hafði komið af bekknum aðeins mínútu áður.

Glódís Perla Viggósdóttir og félagar í sænska liðinu Rosengård eru úr leik eftir tap á heimavelli, 0-1, gegn Chelsea. Chelsea vann einvígi liðanna 4-0 samanlagt.

María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar handboltaþjálfara, var í byrjunarliði Chelsea rétt eins og Glódís var í byrjunarliði Rosengård.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×