Tíska og hönnun

Tískuhönnuðurinn Azzedine Alaia er látinn

Anton Egilsson skrifar
Azzedine Alaia.
Azzedine Alaia. Vísir/EPA
Tískuhönnuðurinn frægi Azzedine Alaia er látinn 77 ára að aldri. BBC greinir frá þessu.

Túniskí hönnuðurinn öðlaðist frægð á níunda áratug síðustu aldar fyrir framgöngu sína innan tískuheimsins. Á meðal þeirra sem hafa klæðst hönnun Alaia í gegnum tíðina eru Naomi Campbell, Lady Gaga, Greta Garbo og forsetafrúin fyrrverandi Michelle Obama.

Margir þekktir einstaklingar hafa vottað Alaia virðingu sína í kjölfar andláts hans en á meðal þeirra eru Victoria Beckam, Kylie Minogue og Mariah Carey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×