Innlent

Vímaður ökumaður hafnaði á kletti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Úr porti lögreglunnar á Hverfisgötu.
Úr porti lögreglunnar á Hverfisgötu. VÍSIR/EYÞÓR
Lögreglan fékk tilkynningu um umferðarslys á Krýsuvíkurvegi skömmu fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sem hafnaði utanvegar á kletti. 

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild og eftir skoðun var hann fluttur handtekinn á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangageymslu.

„Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og nytjastuld ökutækis en bifreiðin sem hann ók hafði verið tilkynnt stolin fyrr um daginn,“ segir í skeyti lögreglunnar.

Fá fékk lögreglan jafnframt tikynningu um rúðubrot í grunnskóla í austurborginni skömmu eftir miðnætti. Ekki er vitað hver var þar að verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×