Handbolti

Sterbik búinn að semja við Veszprém

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sterbik er hér í landsleik.
Sterbik er hér í landsleik. vísir/getty
Markvörðurinn magnaði, Arpad Sterbik, er hættur við að hætta og er búinn að skrifa undir samning við ungverska félagið Veszprém.

Þessi 38 ára gamli markvörður hefur verið með bestu markvörðum heims í mörg ár. Sterbik er að hætta hjá Evrópumeisturum Vardar og gaf í skyn að skórnir væru á leið upp í hillu. Það fannst mörgum fáranlegt enda er hann enn einn af þeim bestu.

Ljubomir Vranjes, þjálfari Veszprém, virðist hafa tekist að snúa Sterbik þar sem hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið sem hann spiloaði með frá 2001 til 2004.

Sterbik hefur átt frábæran feril og einnig leikið með Ciudad Real, Atletico Madrid og Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×