Handbolti

Sigur í fyrsta leik Arons

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Aron Pálmarsson með Barcelona-búninginn sem verður númer 34.
Aron Pálmarsson með Barcelona-búninginn sem verður númer 34. Mynd/Twitter-síða Barcelona
Aron Pálmarsson spilaði sinn fyrsta leik með spænska stórveldinu Barcelona þegar liðið tók á móti króatíska liðinu Zagreb í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag.

Aron hafði rólegt um sig í dag og skoraði aðeins eitt mark úr þremur skotum.

Barcelona hafði betur í leiknum 32-22, en liðið leiddi 17-8 í hálfleik. Eftir sex leiki í A-riðli er liðið með fjóra sigra og níu stig.

Botnlið riðilsins, Kristianstad, tók á móti toppliði Vardar.

Ólafur Andrés Guðmundsson var markahæstur Kristianstad, ásamt Philip Henningsson, með fjögur mörk úr fjórum skotum.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk. Gunnar Steinn Jónsson komst ekki á blað, en lét reka sig útaf í tvær mínútur einu sinni, líkt og Ólafur Andrés.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×