Handbolti

Arnór með tíu mörk í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnór Þór Gunnarsson.
Arnór Þór Gunnarsson. Vísir/EPA
Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í liði Bergischer sem sigraði Nordhorn-Lingen í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag.

Arnór skoraði 10 mörk úr 11 skotum. Bergischer fór með 29-18 sigur, en staðan var 15-10 í hálfleik.

Oddur Grétarsson skoraði tvö mörk fyrir Balingen-Weilstetten sem sigraði Konstanz 32-22. Sigtryggur Daði Rúnarsson komst ekki á blað fyrir Balingen.

Fannar Friðgeirsson náði ekki að skora fyrir Hamm Westfalen sem vann Coburg 21-27.

Eftir 11 umferðir er Bergischer á toppi deildarinnar, en liðið er með fullt hús stiga. Balingen-Weilstetten er í þriðja sæti, með 17 stig. Hamm-Westfalen er um miðja deild með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×