Handbolti

Geir með þrjú mörk í jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Geir Guðmundsson skoraði þrjú mörk í kvöld.
Geir Guðmundsson skoraði þrjú mörk í kvöld. vísir/getty
Geir Guðmundsson skoraði þrjú mörk í jafntefli Cesson-Remmes og Tremblay í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Cesson-Remmes, en leiknum lauk með 30-30 jafntefli.

Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað fyrir Nimes sem vann Saran 29-20.

Nimes var yfir með einu marki í hálfleik, 12-13. Liðið gaf í í seinni hálfleik og fór að lokum með öruggan sigur.

Nimes er í þriðja sæti deildarinnar þegar sjö umferðum er lokið, tveimur stigum á eftir toppliði PSG.

Cesson-Rennes situr í tólfta sæti og hefur enn ekki unnið leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×