Enski boltinn

Dele Alli dregur sig úr landsliðshópnum

Dagur Lárusson skrifar
Dele Alli var frábær gegn Real Madrid
Dele Alli var frábær gegn Real Madrid Vísir/getty
Dele Alli var fjarri góðu gamni gegn Crystal Palace í dag en leikmaðurinn knái er að glíma með meiðsli aftan á læri.

Tottenham unnu leikinn 1-0 en það var Son sem skoraði markið á 64. mínútu en Dele Alli átti stórleik fyrir Tottenham í síðasta leik þar sem hann skoraði tvö mörk gegn Real Madrid.

Þessi meiðsli gera það að verkum að Dele Alli verður ekki með Englendingum í vináttuleikjunum í komandi landsleikjahléi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×