Handbolti

Tveir nýliðar í hópi Axels

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Axel Stefánsson.
Axel Stefánsson. vísir/stefán
Axel Stefánsson, þjálfari kvennalandsliðsins, valdi í dag sextán manna hóp sem tekur þátt í æfingum og spilar svo þrjá vináttulandsleiki.

Hópurinn byrjar að æfa hér heima þann 20. nóvember og spilar svo æfingaleik við Þýskaland þann 25. nóvember. Svo spilar liðið tvo æfingaleiki við Slóvakíu. Þeir leikir fara fram 27. og 29. nóvember.

Selfyssingurinn Perla Ruth Albertsdóttir og Stjörnustúlkan Stefáni Theodórsdóttir eru einu nýliðarnir í hópnum að þessu sinni.

Hópurinn:

Andrea Jacobsen, Fjölnir

Arna Sif Pálsdóttir, Debreceni

Birna Berg Haraldsdóttir, Aarhus United

Ester Óskarsdóttir, ÍBV

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Haukar

Eva Björk Davíðsdóttir, Ajax Köbenhavn

Guðný Jenný Ásmundsdóttir, ÍBV

Hafdís Renötudóttir, SönderjyskE

Helena Rut Örvarsdóttir, Byåsen

Hildigunnur Einarsdóttir, Hypo

Lovísa Thompson, Grótta

Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss

Stefanía Theodórsdóttir, Stjarnan

Thea Imani Sturludóttir, Volda

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Stjarnan

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram




Fleiri fréttir

Sjá meira


×