Ólafur með sigurmarkið á lokasekúndunum | Svona stóðu handboltastrákarnir okkar sig í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2017 19:40 Ólafur Guðmundsson. Vísir/Getty
Nokkrir íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni með liðum sínum í Evrópu í kvöld en þá fóru fram leikir í Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð. Ólafur Guðmundsson var hetja síns liðs í sænska handboltanum.Ólafur Guðmundsson skoraði sex mörk þegar Kristianstad styrkti stöðu sína á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með 30-29 heimasigri á Malmö. Ólafur var mjög sterkur á lokakafla leiksins en hann þurfti aðeins sjö skot til að skora mörkin sín sex. Ólafur skoraði meðal annars sigurmark Kristianstad á lokasekúndum leiksins. Kristianstad hefur unnið sex deildarleiki í röð og er með tveggja stiga forystu. Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark en Gunnar Steinn Jónsson komst ekki á blað.Alfreð Gíslason stýrði sínum mönnum í Kiel til tólf marka sigurs á TVB 1898 Stuttgart, 36-24, á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk úr þremur skotum þegar Füchse Berlin tapaði 26-30 á heimavelli á móti Flensburg. Tap refanna þýðir að Rhein-Neckar Löwen getur nú komist í toppsætið vinni liðið leikina tvo sem það á inni á Füchse.Ragnar Jóhannsson skoraði eitt mark úr fjórum skotum þegar lið hans Hüttenberg tapaði 28-25 á útivelli á móti VfL Gummersbach.Rúnar Kárason náði ekki að skora þegar TSV Hannover-Burgdorf vann sex marka útisigur á Friesenheim, 27-21. Rúnar klikkaði á eina skotinu sínu í leiknum.Tandri Már Konráðsson náði ekki að skora fyrir Skjern þegar liðið vann sannfærandi þrettán marka úitsigur á rúmenska liðinu Dinamo Búkarest, 36-23, í Meistaradeildinni í handbolta. Tandri Már reyndi eitt skot í leiknum. Skjern-liðið er á toppi riðilsins síns með fimm sigra í fyrstu sjö leikjunum. Tandri Már hefur skorað þrjú mörk í Meistaradeildinni í vetur.
Handbolti Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Guðni Valur Norðurlandameistari Sport Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Sjá meira