Sport

Búinn að næla sér í níu Íslandsmeistaratitla á árinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar er búinn að safna gulli á árinu.
Arnar er búinn að safna gulli á árinu. mynd/arnar pétursson
Árið hefur verið gjöfult fyrir hlauparann Arnar Pétursson sem er nífaldur Íslandsmeistari er tveir mánuðir eru eftir af árinu.

Um síðustu helgi tryggði Arnar sér Íslandsmeistaratitilinn í víðavangshlaupi en hinir Íslandsmeistaratitlarnir komu í  3.000 metra innanhúss, 3.000 metra hindrunarhlaupi, 5 km götuhlaupi, 5.000 metra hlaupi á braut, 10 km götuhlaupi, 10.000m á braut, hálf maraþoni og maraþoni. Vasklega gert.

Er Arnar vann Reykjavíkurmaraþonið þá hljóp hann á besta tíma Íslendings hér á landi eða á 2:28:17.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×