Innlent

Ágætis haustveður um helgina

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Háskólanemar ættu að líta aðeins upp úr bókunum um helgina og dást að litadýrðinni meðan hennar nýtur við.
Háskólanemar ættu að líta aðeins upp úr bókunum um helgina og dást að litadýrðinni meðan hennar nýtur við. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan gerir ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu á Austfjörðum fram undir hádegi og má búast við vatnavöxtum ásamt auknum líkum á skriðuföllum. Þrátt fyrir það má búast við fallegu veðri um helgina. Þó ætti fólk að varast hálkuna.

Það hefur rignt mikið austanlands síðdegis í gær og í nótt. Nú í morgunsárið hefur dregið úr rigningunni á Suðausturlandi en enn mun rigna mikið á Austfjörðum fram undir hádegi. Síðdegis léttir hins vegar til.

„Sjálfvirkir úrkomumælar eru nokkrir á svæðinu og þegar þetta er skrifað hefur mest safnast í mælinn á Neskaupstað eða rúmlega 100 millimetrar frá því úrhellið hófst þar uppúr hádegi í gær. Á sama tíma hafa mælst um 90 mm á Fáskrúðsfirði,“ útskýrir veðurfræðingur Veðurstofunnar.

Suðlæg átt er í kortunum í dag og einhver væta „nokkuð víða.“ Vindurinn og úrkoman minnkar þegar líður á daginn og í kvöld verður búið að stytta upp og komið hæglætisveður um allt land. Vegir verða margir blautir eftir daginn og í kvöld og nótt verður semsagt hægur vindur, það rofar til og kólnar.

Vegfarendur ættu því að vera á varðbergi gagnvart hálku að sögn veðurfræðings. Þá er útlit fyrir „rólegheit“ og „alveg ágætis haustveður“ um helgina - „og því upplagt að njóta útivistar.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:

Hæg norðlæg eða breytileg átt, með þurru veðri og yfirleitt bjart sunnan heiða. Norðan 5-10 m/s dálítil rigning austanlands síðdegis. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn.

Á sunnudag:

Austan og norðaustan 3-8 og dálítil væta, en þurrt um landið vestanvert. Bætir í vind um kvöldið. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:

Austan 8-15 m/s, en heldur hægari síðdegis. Talsverð rigning suðaustantil, en rigning með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 5 til 10 stig.

Á þriðjudag:

Norðaustan 3-10, en 10-15 á Vestfjörðum. Dálítil rigning af og til, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti svipaður.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Norðaustlæg átt með svolítilli vætu fyrir norðan og austan, en bjart sunnan heiða. Hiti 3 til 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×