Ögrar staðalímyndunum Rebekka Blöndal skrifar 20. október 2017 14:00 Thelma Björnsdóttir með fyrirsætum sínum á Pulp Fashion Week í París 2015.
Thelma Björnsdóttir er 29 ára fatahönnuður með stórar hugsjónir. Hún stundaði nám í París og er nýflutt til Sviss. Hún er með eigið fatamerki og hyggst hanna flíkur fyrir konur í öllum stærðum. Thelma byrjaði ung að velta fyrir sér tísku og fötum. Sem unglingur var hún þó oftast í vandræðum með fataval og að kaupa föt var hið mesta erfiði. Thelma upplifði því tískuheiminn óaðgengilegan vegna líkamsstærðar sinnar. Það var þess vegna sem hún ákvað að taka málin í sínar hendur og gerast fatahönnuður. „Ég fann löngun til að hjálpa fólki í yfirstærð sem hefur áhuga á tísku. Hún er í raun ekki aðgengileg fyrir þennan hóp og svo er líka skortur á fjölbreytileika þegar kemur að „plus size“ fatnaði. Þetta eru mikið til einsleit föt og hugsunin er að steypa alla í sama mótið.“ Aðspurð um hugmyndafræðina sem liggur að baki fatamerkinu segist Thelma ætla að leggja sitt af mörkum til að breyta því hvernig staðalímyndir kvenna eru mótaðar af samfélaginu;Thelma Björnsdóttir fatahönnuður.„Mig langar að taka burtu þennan ramma sem er settur utan um „plus size“ tísku og gera tískuna aðgengilegri. Ég vil færa konum eitthvað sem þær geta prufað sig áfram með, farið út fyrir kassann. Oftast er þetta þannig að það er ein aðalfatalína og svo er „plus size“ lína. Svo er alltaf mikill munur á línunum. Ég vil eyða þessu, kynna eina línu og hafa margar stærðir í boði. Síðan má líka tala um það sem er jákvætt að gerast. Fatahönnuðurinn Christian Siriano er til dæmis núna farinn að opna línuna sína fyrir stærri stærðum og var með módel í alls konar stærðum á nýjustu tískusýningunni sinni. Það er það sem ég vil gera.“ Um eigin stíl segir Thelma hann vera nokkuð fjölbreyttan en á sama tíma vill hún ögra staðalímyndum með fatavali sínu og prófa eitthvað nýtt. „Ég reyni að vera svona frekar afslöppuð eða „effortless chic“ ef ég má sletta. En ég vil líka ögra þessari pælingu sem er með konur í yfirstærð, það að þær þurfi að fela eitthvað. Ég er að reyna að brjótast út úr því og ganga í því sem mér finnst flott þó svo að það sjáist í magann á mér. Það er eins og sumar kröfur, sem settar eru á konur í yfirstærð, séu gerðar fyrir þægindi annarra. Svo að fólki líði ekki illa við að horfa á mann. Ég á til dæmis netbol sem ég ætti í raun ekki að klæðast samkvæmt þessu. Mér finnst að allar konur ættu að stíga út fyrir kassann sinn og prófa sig áfram óháð því í hvaða stærð þær eru. Dýfa tánum í óvissuna. Þú tapar ekkert á því.“Buxur sem verða til sölu hjá Thelmu.Thelma lærði fatahönnun í IFA Paris og sýndi útskriftarlínuna sína á Pulp Fashion Week árið 2015. Síðan þá hefur hún unnið að opnun netverslunar á heimasíðu sinni. Fyrsta flíkin sem fer í sölu verða buxur sem eru úr útskriftarlínu Thelmu. „Mig langaði að byrja á þeim því þær fengu svo góðar undirtektir á Pulp Fashion Week í París. Ég er búin að vera að vinna í stærðarskala sem ég vil miða við en ég stefni á að byrja að selja í byrjun næsta árs. Það er hægt að skrá sig á póstlistann á heimasíðunni minni en hún er enn í vinnslu. Þar sendi ég út tilkynningu þegar netverslunin verður opnuð ef fólk hefur áhuga á henni.“
Mest lesið Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Sjá meira