Domino's Körfuboltakvöld: Framlenging - Höttur fallinn eins og Titanic Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. október 2017 23:15
Teitur Örlygsson og Kristinn Geir Friðriksson tókust á í Framlengingunni í Domino's Körfuboltakvöldi í gærkvöld. Nýliðar Hattar og Vals mættust á Egilsstöðum og unnu gestirnir í framlengdum leik. „Ég spáði þeim í úrslitakeppni, við spáðum þeim níunda. Ég er farinn af þessu skipi, þetta er bara Titanic fyrir mér, ég nenni þessu rugli ekki,“ sagði Kristinn Geir, en Höttur hefur ekki staðið undir væntingum í byrjun tímabils og hafa tapað öllum leikjum sínum. „Þeir eru fallnir. Gleymdu þessu rugli.“ Stefan Bonneau er kominn í Stjörnuna, gerir hann þá að meistaraefnum? „Það er ekki sama sprengi í honum og við þekkjum, en vonandi nær hann sér á strik,“ sagði Teitur. Kristinn tók undir það. „Það er einhver óheilla ára yfir honum finnst mér. Toppmaður og allur pakkinn, en það vantar rosalega mikið upp á þennan glamúr sem hann var að sýna með Njarðvík.“ Þór Þorlákshöfn hafa valdið vonbrigðum í upphafi tímabils, eftir að hafa orðið Meistarar meistaranna hafa þeir ekki unnið leik. „Ég hélt að það væri eitthvað chemistry og einhver stemming, nei akkúrat þveröfugt. Burt með þennan Kana, hann er í engu formi og ekkert að gera fyrir liðið og það sést á öllu fasi í liðinu,“ sagði Kristinn. „Þetta er ekki lið lengur, þetta eru tætlur af einstaklingum sem eru að reyna að berja sig saman, andrúmsloftið er ömurlega lélegt.“ Þeir ræddu einnig hvaða lið séu búin að heilla mest framan af móti og hvernig liðin í deildinni eru að nýta bekkinn sinn. Alla Framlenginguna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið „Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Sport Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fótbolti Sama sorglega lausnin og vanalega: Drögum kvennaliðið úr keppni Körfubolti Landsliðskonan náði á kjörstað fyrir lokun Sport Dagskráin í dag: Kópavogsslagur í Bestu deildinni Sport Mahomes í hlutverki leiðsögumanns í heimsókn Chiefs í Hvíta húsið Sport Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Fleiri fréttir Charles Barkley og fleiri hneyksluð yfir ljótum brotum á Caitlin Clark Sama sorglega lausnin og vanalega: Drögum kvennaliðið úr keppni Fotis og Nat-vélin saman undir körfunni hjá Hamri næsta vetur Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Martin stoðsendingahæstur í öruggum sigri Benedikt tekinn við Stólunum Birna og Kristinn valin best Verðlaun veitt á lokahófi KKÍ Valsmenn fyrstu kanalausu Íslandsmeistararnir í 24 ár Hnéskel Kristófers fór í tvennt Ofurdúóið sá til þess að Dallas spilar til úrslita um NBA titilinn Sjáðu stikluna fyrir nýju heimildaþættina um Grindavík Rússíbanareið Valsmanna í Íslandsmeistarasyrpunni Þótti vænt um að liðsfélagarnir mættu allir í jarðarförina Átján Íslandsmeistaratitlar á Hlíðarenda á átta árum Myndasyrpa frá oddaleiknum og fögnuði Valsmanna „Síðustu mánuðir ógeðslega erfiðir en maður á samt alltaf að mæta og spila“ „Við erum djöfulsins töffarar og sýndum það í dag“ „Let´s go og vinnum fleiri“ Twitter um oddaleikinn: Finnur Freyr, dómgæslan og ósvikin Valsgleði „Sögðust ætla að klára þetta fyrir mig“ Uppgjör: Valur - Grindavík 80-73 | Valsmenn Íslandsmeistarar í fjórða sinn Kristófer meiddist eftir örfáar sekúndur Leikmennirnir sem hafa skarað fram úr í baráttunni um titilinn Iðkendur með forgang: „Förum ekki að breyta því núna“ Finnur Freyr getur jafnað met Friðriks Inga í kvöld Grindvíkingar gætu tapað fjórða oddaleiknum um titilinn Leikmenn handboltaliðsins heiðursgestir í kvöld „Við skuldum sjálfum okkur alvöru frammistöðu á útivelli“ Grindvíkingar verða áfram í Smáranum Sjá meira