Fótbolti

Samúel skoraði í stórsigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Samúel Kári Friðjónsson í leik með unglingaliði Reading
Samúel Kári Friðjónsson í leik með unglingaliði Reading Mynd/Getty
Samúel Kári Friðjónsson kom inn af bekknum og skoraði eitt marka Vålerenga í stórsigri liðsins á Viking í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Mark Samúels var það fimmta í röðinni hjá Vålerenga í dag, en liðið vann 1-7 sigur.

Björn Bergmann Sigurðarson var að vanda í byrjunarliði Molde gegn Haugesund, en var skipt út af á 82. mínútu án þess að ná að skora mark.

Molde vann leikinn 1-0 með marki frá Babacar Sarr á 29. mínútu.

Aron Sigurðarson var ónotaður varamaður í 1-2 sigri Tromsö á Stabæk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×