Sport

Fullorðnir atvinnumenn fögnuðu með því að fara í feluleik | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
JuJu Smith-Schuster telur upp á tíu.
JuJu Smith-Schuster telur upp á tíu. Vísir/Getty
Leikmenn í NFL-deildinni eru duglegir að finna upp frumleg fagnaðarlæti sem vekja enn meiri athygli á afrekum þeirra inn á vellinum.

Leikmenn Pittsburgh Steelers liðsins eru engin undantekning og þeir buðu upp á eitthvað alveg nýtt í leik Pittsburgh Steelers og Cincinnati Bengals í gær.

Hlauparinn Le'Veon Bell spilar í treyju númer 26 og útherjinn JuJu Smith-Schuster er í treyju númer 19.

JuJu Smith-Schuster kom Pittsburgh Steelers í 13-7 með snertimarki í öðrum leikhluta og þeir félagar héldu upp á það með því að fara í feluleik. JuJu Smith-Schuster taldi upp á tíu en Le'Veon Bell faldi sig. Það má sjá þessa uppákomu hér fyrir neðan.















Pittsburgh Steelers vann leikinn á endanum 29-14 og höfðu því þeir félagar frekari ástæðu til að fara í feluleik eftir leikinn.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×