Glamour

Draumaheimur í stuttmynd H&M x Erdem

Ritstjórn skrifar
Myndir: H&M
Stuttmynd úr gerð Baz Luhrmann fyrir línu H&M x Erdem hefur litið dagsins ljós, og bíður leikstjórinn frægi okkur velkominn inn í draumkenndan heim fyrir línuna. 

Stuttmyndin er mjög mikið fyrir augað, og sérstaklega fyrir þá sem hafa gaman að blómum. Mikil fegurð er í myndinni, bæði í fatnaðinum og í umhverfinu, en hún ber nafnið ,,The Secret Life of Flowers". 

,,Ég vildi að myndin væri eins og kvikmynd í fullri lengd. Þetta er nútímaleg ástarsaga sem gerist á sveitasetri sem geymir ýmis leyndarmál og er einhverskonar myndlíking fyrir nútímann - þetta er erfiður heimur en hérna innihalda þeir hlutir sem skipta máli áfram að vaxa og dafna í eilífu vori," sagði Baz Luhrmann um myndina. 

Stuttmyndin er hér neðar í fréttinni og einnig skulum við sjá nokkrar myndir sem teknar voru á bakvið tjöldin. 

Lína H&M x Erdem kemur í sölu 2. nóvember næstkomandi, og verður fáanleg í Smáralind. 






×