Innlent

Stefna flokkanna: Efnahagsmál

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Hér birtist stefna stjórnmálaflokkanna í málaflokknum sem snýr að efnahagsmálum. 

Miðflokkurinn:

Við ætlum að klára endurskipulagningu fjármálakerfisins, greiða umfram-eigið fé úr bönkunum í ríkissjóð, nýta forkaupsrétt ríkisins á Arion banka og gefa öllum Íslendingum þriðjung hlutabréfa í honum. Við ætlum að auka samkeppni í bankakerfinu og lækka vexti til að tryggja einstaklingum og fyrirtækjum betri kjör.



Viðreisn:

Viðreisn vill brjótast út úr vítahring sífelldra efnahagssveiflna með því að koma á stöðugleika í gjaldmiðlamálum. Kostnaður vegna vaxtaumhverfis krónunnar jafngildir um 40 vinnudögum á hvern venjulegan Íslending. Greiðslubyrði einstaklinga og fyrirtækja er margfalt þyngri en í samanburðarlöndum. Stöðugur gjaldmiðill eykur hag almennings.



Björt framtíð:

Mestu kjarabætur sem hægt væri að færa þjóðinni er upptaka annars gjaldmiðils. Þar er evran nærtækust. Með því þyrftum við ekki að velta fyrir okkur verðtryggingu og vextir myndu lækka auk þess sem stöðugleiki fengist í gjaldmiðilsmál. BF vill tryggja þjóðinni endurgjald fyrir afnot náttúruauðlinda og nýta þann sjóð til uppbyggingar á innviðum.



Vinstri græn:

Breytingar á skattkerfi og almannatryggingakerfi stuðli að sátt á vinnumarkaði. Skattar ekki hækkaðir á almennt launafólk. Ráðast gegn notkun aflandsfélaga í skattaskjólum. Skattkerfið nýtt til jöfnunar. Óbreyttur virðisaukaskattur á ferðaþjónustu. Komugjöld og gistináttagjald nýtt til uppbyggingar innviða fyrir ferðaþjónustuna.



Samfylkingin:

Við ætlum ekki að hækka skatta á lág- og millitekjufólk. Við viljum færa skattbyrði til þeirra sem hana geta borið. Við viljum réttlátan arð af auðlindum í stað skatta á almenning. Við ætlum að tryggja öllum öruggt húsnæði – minnst 6.000 nýjar leiguíbúðir í félögum sem eru rekin án hagnaðarsjónarmiða.



Flokkur fólksins:

Stokka ber upp fjármálakerfi landsins, leggja af verðtryggingu og lækka vexti. Húsnæðisliður verði felldur úr vísitölu til verðtryggingar. Aðskilnaður fjárfestingar- og viðskiptabanka. Samfélagsbanki verði stofnaður. Komið verði á fót félagslegu kaupleigukerfi og leigumarkaði sem ekki hefur hagnað að leiðarljósi.



Sjálfstæðisflokkur:

Við viljum setja arðinn af orkuauð- lindum landsins í Þjóðarsjóð og nýta hann að hluta í aðkallandi verkefni. Ljúka þarf endurskoðun peningastefnunnar, halda verð- bólgu og atvinnuleysi niðri, bæta samkeppnisumhverfi fyrirtækja og verja 100 milljörðum úr bankakerfinu í nauðsynlegar innviðafjárfestingar.



Framsókn:

Einfalt og réttlátt skattaumhverfi sem léttir skattbyrði á lágtekjuhópa. Skattaeftirlit til að draga úr svartri atvinnustarfsemi. Ísland á að vera í fararbroddi í baráttunni gegn lágskattasvæðum sem nýtt eru til skattasniðgöngu. Bankarnir greiði 40 milljarða arð í ríkissjóð. Framsókn vill að einn af stóru bönkunum verði samfélagsbanki.



Píratar:

Píratar vilja hækka persónuafslátt strax á næsta ári um 7.000 kr. á mánuði. Takmarkið er að við lok kjörtímabilsins verði hann tæpar 78 þúsund krónur á mánuði. Fjármál hins opinbera skulu vera opin, tölvutæk, gagnsæ og sundurliðuð, og eignarhald lögaðila skal vera opið og rekjanlegt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×