Bílar

Stilling bregst við breyttum þjónustukröfum

Finnur Thorlacius skrifar
Skutlurnar hjá Stillingu.
Skutlurnar hjá Stillingu.
Stilling hf. er um þessar mundir að efla sendingarþjónustu á varahlutum til bílaverkstæða til að mæta breyttum þjónustukröfum. Samhliða þessum breytingum hefur Stilling ákveðið að loka varahlutaverslun sinni við Smiðjuveg í Kópavogi þann 1. nóvember næstkomandi. 

„Við fjölgum skutlum sem fara á klukkutíma fresti allan daginn með varahluti sem verkstæðin panta ýmist á netinu, í tölvupósti eða síma. Með þessu móti spara viðskiptavinir sér dýrmætan tíma og eru í flestum tilfellum að fá vörurnar í hendur fljótar en að sækja þær sjálfir, segir Júlíus Bjarnason framkvæmdastjóri Stillingar.“

„Þetta er sama þróun og orðið hefur víða erlendis, að þjónustan færist yfir í netverslun hjá stórum vöruhúsum. Það er fljótlegra og ódýrara fyrir viðskiptavininn að fá vöruna senda en leggja á sig tilheyrandi ferðir og fyrirhöfn. Það hljómar kannski sérkennilega að bæta þjónustuna og loka útsölustað í leiðinni. Málið er hins vegar að stór hluti viðskiptavina verslunarinnar við Smiðjuveg hafa verið verkstæðin sem núna sækja í vaxandi mæli í sendingarþjónustuna, vegna þess að hún hentar þeim miklu betur.

Þar að auki er ekki langt að fara í verslun Stillingar á Bíldshöfða fyrir þá sem vilja gera innkaupin í eigin persónu, sagði Júlíus ennfremur.“ Engar breytingar er fyrirhugaðar í öðrum verslunum Stillingar í Hafnarfirði, á Selfossi og Akureyri og engum starfsmönnum verður sagt upp.

„Þetta er sama þróun og orðið hefur víða erlendis, að þjónustan færist yfir í netverslun hjá stórum vöruhúsum, segir framkvæmdastjóri Stillingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×