Innlent

Rúmur helmingur leggst gegn veggjöldum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hvalfjarðargöngin voru opnuð hinn 11. júlí 1998 og hafa veggjöld verið innheimt þar frá upphafi.
Hvalfjarðargöngin voru opnuð hinn 11. júlí 1998 og hafa veggjöld verið innheimt þar frá upphafi. vísir/pjetur
Rúmlega helmingur þeirra sem afstöðu taka segjast ekki vera reiðubúnir til að greiða vegtolla ef stofnbrautir frá Reykjavík verða tvöfaldaðar. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Um 44 prósent segjast vera reiðubúin til þess að greiða vegtolla. Munurinn er vel umfram vikmörk sem er 3,44 prósent.

Samgöngu- og sveitarstjórna­ráðherra hefur sagt nauðsynlegt að leita annarra leiða en í ríkissjóð til að fjármagna samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. „Verkefnin eru mjög stór og knýjandi. Það er alveg ljóst að ef við ætlum okkur að ná alvöru átaki á næstu fimm til tíu árum, sem um munar til að ná í skottið á okkur í uppbyggingu í vegakerfinu, munum við þurfa að leita að mínu mati eftir fjármagni annars staðar en úr ríkissjóði,“ sagði Jón Gunnarsson í samtali við Stöð 2 hinn 13. júlí síðastliðinn. Á þingmálaskrá ráðherrans, sem opinberuð var þegar þing var sett um miðjan september, var frumvarp um stofnun félaga um vegaframkvæmdir á stofnæðum frá höfuðborgarsvæðinu.

Í Fréttablaðinu hinn 28. september kom fram að kostnaður samfélagsins sem hlaust af umferðarslysum á helstu stofnæðum út frá höfuðborgarsvæðinu var tæpir 16 milljarðar á árunum 2012 til 2016. Tölur um þetta voru kynntar á umferðarþingi sem fram fór á Selfossi.

„Þessar tölur byggja á aðferðafræði sem áætlar kostnað samfélagsins frekar varlega,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshóps sem fjallar um fjármögnun samgöngubóta. Tölurnar ná yfir kostnað vegna starfa lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutningamanna og kostnað vegna eignatjóns, sjúkrahúskostnað, vinnutap og þess háttar.

Könnunin var gerð þannig að hringt var í 1.354 manns þar til náðist í 800 samkvæmt lagskiptu úrtaki 2. og 3. október. Svarhlutfallið var 59,1 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Ertu tilbúin(n) að greiða vegtolla ef stofnbrautir frá Reykjavík verða tvöfaldaðar? Alls tóku 86 prósent afstöðu, 13 prósent sögðust óákveðin en eitt prósent svaraði ekki.


Tengdar fréttir

Daglegir vegfarendur fái verulegan afslátt

Hugmyndir um vegatolla á vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu eru í vinnslu í samgönguráðuneytinu. Bæjarstjórar í nærliggjandi sveitarfélögum eru ósammála um ágæti tollanna. Hugmyndin ekki verið rædd í ríkisstjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×