Innlent

Fljúga með 4,5 milljónir farþega

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Flugvél Icelandair
Flugvél Icelandair Vísir/Vilhelm
Áætlað er að farþegar Icelandair á næsta ári verði um 4,5 milljónir og muni fjölga um 400 þúsund frá yfirstandandi ári. Það samsvarar um 11 prósenta fjölgun.

Flug verður hafið til þriggja nýrra áfangastaða, Cleveland og Dallas í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi, auk Berlínar sem bætist við leiðakerfið nú í nóvember. Þá verður ferðum fjölgað til fjölmargra borga í Norður-Ameríku og Evrópu.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Icelandair Group að snemma á næsta ári mun Ice­landair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×