Innlent

Víða næturfrost næstu daga

Anton Egilsson skrifar
Það verður næturfrost allvíða á landinu í nótt.
Það verður næturfrost allvíða á landinu í nótt. Veðurstofa Íslands
Veðurhorfur næstu daga gera ráð fyrir næturfrosti allvíða á landinu, einkum norðaustanlands. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Í dag gera veðurhorfur ráð fyrir hæg vestlægri eða breytileg átt og skúrum, en bjartviðri suðaustan- og austantil á landinu. Hægviðri og víða léttskýjað á morgun, en sunnan gola og skýjað með vesturströndinni. Hiti á bilinu 3 til 8 stig yfir daginn, en allvíða næturfrost.

Útlit er fyrir að í byrjun næstu viku verði áfram svipað veður nema heldur úrkomuminna. Víða léttskýjað og því verður áfram líkur á næturfrosti. Austlægar áttir frá og með miðvikudegi fram að helgi með rigningu af og til sunnanlands en þurrt á Norðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×