Fótbolti

Viðar kom Maccabi á bragðið í sigri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Viðar í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR.
Viðar í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR. vísir/andri marinó
Landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson skoraði fyrra mark leiksins í 2-0 sigri Maccabi Tel Aviv á heimavelli gegn Yehuda í ísraelsku deildinni í dag.

Maccabi var fram að þessu búið að gera tvö jafntefli í röð en með sigrinum náðu þeir að minnka forskot Hapoel Haifa niður í þrjú stig.

Viðar kom Maccabi yfir á 51. mínútu leiksins þegar hann skallaði í netið en þetta var fjórða mark hans í deildinni. Nick Blackman bætti svo við marki í uppbótartíma og innsiglaði sigurinn.

Maccabi situr í öðru sæti deildarinnar með 14 stig að sjö umferðum loknum en eftir tap í fyrstu umferð hefur Maccabi ekki tapað leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×