Mahrez bjargaði stigi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/afp
Vandræðagangur Leicester City í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í kvöld er liðið náði aðeins jafntefli á heimavelli gegn WBA.

Það var markalaust í leikhléi en Nacer Chadli kom WBA yfir á 63. mínútu.

Það voru eflaust einhverjir stuðningsmenn Leicester við það að gefa upp vonina er Riyad Mahrez skoraði tíu mínútum fyrir leikslok og tryggði Leicester eitt stig í leiknum.

Leicester er í þriðja neðsta sæti deildarinnar, sem er fallsæti, með aðeins sex stig eftir átta leiki. WBA er í tíunda sæti með tíu stig.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira