Enski boltinn

Shakespeare rekinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Craig Shakespeare þarf að finna sér nýja vinnu.
Craig Shakespeare þarf að finna sér nýja vinnu. vísir/getty
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Leicester City sé búið að reka Craig Shakespeare eftir aðeins fjóra mánuði í starfi.

Shakespeare tók við Leicester þegar Claudio Ranieri var látinn taka pokann sinn í mars.

Leicester vann fyrstu sex leikina undir stjórn Shakespeares en síðan hallaði undan fæti.

Refirnir hafa farið illa af stað í vetur og aðeins unnið einn af átta leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Leicester er í 18. sæti deildarinnar.

Shakespeare stýrði Leicester í síðasta sinn þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við West Brom í gær.


Tengdar fréttir

Mahrez bjargaði stigi

Vandræðagangur Leicester City í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í kvöld er liðið náði aðeins jafntefli á heimavelli gegn WBA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×