Rappið komið inn á jólatónleikamarkaðinn Stefán Þór Hjartarson skrifar 18. október 2017 11:00 Gauti fær með sér nokkra vinsælustu tónlistarmenn þjóðarinnar eins og JóaPé og Króla, Sölku Sól og Aron Can. Einnig verður band og kór ásamt því að sjálfur Helgi Björns kemur inn í veisluna. Mynd/Baldur Kristjánsson „
Þetta byrjaði sem svona létt grín sem enginn stoppaði af og varð á endanum að skemmtilegu konsepti. Ég var líka bara orðinn leiður á því að hafa ekkert að gera í desember – ég meina, það eru Jólagestir Bó, Frostrósir, Baggalútur … það er allt yfirhlaðið af jólatónleikum en lítið pláss fyrir eitthvað annað. Ég sá smá pláss á markaðnum því að það er ekkert verið að sinna minni senu neitt rosalega. Upphaflega áttu þetta að vera pjúra rapptónleikar en svo fékk ég bara jólaveikina og byrjaði að hlaða ofan á þetta. Endanlegt „line-up“ er ég, Helgi Björns, Aron Can, JóiPé og Króli, Salka Sól og sérstakir gestir eru Cyber,“ segir Emmsjé Gauti spurður af hverju í ósköpunum hann sé að halda jólatónleika – en Júlevenner Gauta er staðreynd og rappið formlega komið inn á jólatónleikamarkaðinn. Ásamt þeim sem Gauti nefndi verður fullskipað band með á sviðinu – Vignir og Keli úr Agent Fresco, Steini úr Moses Hightower, Rögnvaldur á gítar og Bartónar syngja með. „Þetta heitir Júlevenner vegna þess að ég þorði ekki að kalla þetta Jólavini, ég bjóst þá við að Bó myndi hringja alveg brjálaður. Annars kom mér á óvart að þegar ég fór að hringja í fólk og biðja það að vera með voru allir mjög mikið til í það. Púsluspilið varð svo fullkomið þegar Helgi Björns sagðist vera með – þá heyrði ég jólabjöllurnar klingja.“Hefurðu ekkert verið að fá á þig skot fyrir að halda jólatónleika? Ekki finnst öllum slíkir tónleikar vera merkilegir. „Ég er rétt svo búinn að tísa þessu og er strax búinn að fá gagnrýni á Twitter. Bubbi Morthens sagði bara „Enga jólatónleika, bíttu í kúlurnar rappari og haltu sjálfsvirðingunni.“ Ég elska Bubba, en Bubbi, hvað með Þorláksmessutónleikana þína? Bíttu bara sjálfur í kúlurnar. Ég býst við að umtalið verði það gott að Bubbi verði hreinlega með okkur á næsta ári.“Hvernig verður þetta – svaka sýning eða bara venjulegir tónleikar? „Ég er kominn með smá kvíðakast yfir hversu stórt þetta er orðið. Þetta er sitjandi gigg í Gamla bíói, þannig að það eru ekkert sérstaklega margir miðar í boði, svo að ég minni á forsöluna sem fer í gang í dag á Aur-appinu. Þetta er sýning – þú ert ekkert að fara að labba inn á venjulega rapptónleika eða venjulega jólatónleika. Þetta er einhvers konar mixtúra. Við tökum „venjulegu“ lögin okkar í bland við einhverja jólageðveiki sem ætti að koma öllum í stuð fyrir jólin. Við erum líka með einn jólaperra í hópnum – hann Vignir bassaleikari hefur farið á alla jólatónleika sem haldnir hafa verið síðustu tíu árin. Hann er með allar klisjurnar á hreinu þannig að það er gott að hafa hann með. Ég hins vegar hef aldrei farið á jólatónleika þannig að ég er eiginlega bara að giska á hvernig jólatónleikar fara fram.“ Tónleikarnir fara svo fram kortér í jólin, 22. desember í Gamla bíói.
Jólalög Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Fleiri fréttir Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira