Innlent

Kaupa land af Seðlabankanum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Aldís Hafsteinsdóttir.
Aldís Hafsteinsdóttir. vísir/pjetur
Seðlabankinn mun selja Hvera­gerðis­bæ svokallað Kambaland fyrir 200 milljónir króna. Þetta kemur fram á bloggsíðu Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra. Rætt var á þriðjudag um greiðslufyrirkomulag.

„Náðum góðri niðurstöðu sem vonandi gerir að verkum að einfaldara verður að eignast landið. Síðan er gaman að geta þess að með því að taka góðar ákvarðanir nokkuð hratt á næstunni væri mögulega hægt að úthluta þarna fyrstu lóðunum í byrjun næsta árs,“ skrifar bæjarstjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×