Handbolti

Botnliðið lítil fyrirstaða fyrir Álaborg

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Arnór Atlason í leik með Íslandi
Arnór Atlason í leik með Íslandi Vísir/getty
Janus Daði Smárason og Arnór Atlason voru í eldlínunni með Álaborg í dag þegar þeir heimsóttu botnlið Tonder í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Arnór og Janus gerðu sitt markið hvor í öruggum fjögurra marka sigri en lokatölur urðu 26-30, Álaborg í vil. Sebastian Barthold var markahæstur hjá Álaborg með átta mörk.

Álaborg í 5.sæti deildarinnar en þjálfari liðsins er Aron Kristjánsson.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×