Bílar

General Motors stefnir á bensínlausa framtíð

Birgir Olgeirsson skrifar
Chevrolet Bolt, rafbíll frá General Motors.
Chevrolet Bolt, rafbíll frá General Motors.
Einn af stærstu bílaframleiðendum í heimi, General Motors, hefur tilkynnt að fyrirtækið stefni hraðbyri að því að hætta framleiðslu ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.



Greint er frá því á vef  Washington Post
 að Genaral Motors muni senda frá sér tvær gerðir af rafbílum á næsta ári og átján til viðbótar fyrir árið 2023.

Fyrirtækið bauð fjölmiðlum til fundar fyrr í dag en þar sagði einn af forsvarsmönnum fyrirtækisins að breytingin úr eldsneytisbílum í rafbíla muni taka tíma, en þetta sé stefnan sem fyrirtækið mun fylgja.

General Motors trúir á rafbílaframtíð,“ er haft eftir Mark Reuss á vef Washington Post. „Þrátt fyrir að eitthvað sé í það, þá er GM staðráðið í að auka notkun og samþykki fyrir rafknúnum ökutækjum.“

Reuss er sagður hafa forðast að svara spurningum um hvenær nákvæmlega fyrirtækið mun láta af framleiðslu ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, en minntist á að fyrirtækið sé of stórt til að leggja mat á það að svo stöddu.

General Motors var þriðji stærsti bílaframleiðandinn í heimi árið 2016, en það ár sló fyrirtækið eigið met með því að selja 10 milljónir ökutækja. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×