Bílar

Tólf bílar komnir í úrslit í vali á bíl ársins

Finnur Thorlacius skrifar
Renault Talisman hlaut Stálstýrið í fyrra.
Renault Talisman hlaut Stálstýrið í fyrra.
Tólf bílar hafa verið valdir í úrslit í Bíl ársins 2018 en það er Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) sem sér um valið á Bíl ársins, nú í ellefta skiptið. Alls 30 bílar voru tilnefndir í valinu. Bílunum var skipt í fjóra flokka eftir stærð en þrír efstu bílarnir í hverjum flokki komust í úrslit. 

Í flokki smábíla urðu Suzuki Swift, Nissan Micra og Kia Rio fyrir valinu. Í flokki millistórra bíla komust Honda Civic, Hyundai Ionic og Hyundai i30 í úrslitin. Í flokki stórra fólksbíla voru það BMW 5, Peugeot 3008 og Volvo V90 Cross Country sem stóðu eftir á blaði og í flokki jeppa og jepplinga komust Skoda Kodiaq, Volvo XC60 og Renault Koleos í úrslit. 

Sá bíll sem valinn verður Bíll ársins hlýtur verðlaunagripinn Stálstýrið. Í fyrra var Renault Talisman valinn Bíll ársins. Tilkynnt verður um val á Bíl ársins 2018 síðar í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×