Lífið

Fullkomin ferðataska: Sest á töskuna og brunar um flugvöllinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það verða allir að eignast svona tösku.
Það verða allir að eignast svona tösku.
Það þekkja eflaust margir að lenda í því að vera of seinn í flug og þurfa hreinlega að hlaupa inni á flugstöðinni til þess að ná inn í vél fyrir brottför.

Ferðatöskur hafa í gegnum tíðina þróast gríðarlega og til að mynda eru ekkert liðin svo mörg ár síðan að hjólin fóru að birtast undir töskunum.

Nýjasta uppfinningin í þessum bransa er ferðataska sem hægt er að keyra um flugstöðina á. Þú einfaldlega sest á töskuna og hún brunar með þig af stað eins og sjá má hér að neðan.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×