Körfubolti

Domino's Körfuboltakvöld: "Kominn með gamla formið af Keflavík"

Keflavík rústaði Val í fyrstu umferð Dominos-deildar karla og bakvarðasveit þeirra var ein aðalástæða þess að Keflavík vann svo stórt.

Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi fóru vel yfir þetta í þættinum á föstudag, en það eru fimm eðalskyttur sem kunna að negla boltanum ofan í körfuna.

Þeir áttu skínandi leik og voru allir að leggja í púkkinn. Spekingarnir Hermann Hauksson og Fannar Ólafsson tóku undir þetta með þáttarstjórnandanum Kjartani Atla Kjartanssyni.

„Þú ert kominn með gamla formið af Keflavík," sagði Fannar Ólafsson.

Innslagið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×