Formúla 1

Hamilton: Ég þurfti að hafa mig allan við

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton stóð á efsta þrepinu á verðlaunapallinnum í dag. Max Verstappen og Daniel Ricciardo veittu honum félagsskap þar.
Lewis Hamilton stóð á efsta þrepinu á verðlaunapallinnum í dag. Max Verstappen og Daniel Ricciardo veittu honum félagsskap þar. Vísir/Getty
Lewis Hamilton landaði 25 stigum í dag með frábærum akstri. Hann vann þar með sinn áttunda kappakstur í Formúlu 1 á tímabilinu. Hver sagði hvað eftir tímatökunni?

„Áhorfendur eru búnir að vera frábærir í dag. Það er langt síðan við höfum séð í sjóinn af brautinni. Max [Verstappen] var fljótur í dag og ók góða keppni. Ég þurfti að hafa mig allan við til að hafa stjórn á aðstæðum og eiga svar við lokaatlögunni frá Max,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum.

„Hraðinn í dag var góður, ég var samkeppnishæfari á mjúku dekkjunum en þeim ofur-mjúku. Bíllinn er að ná framförum í hverri keppni, verst að það er erfitt að taka fram úr hér,“ sagði Max Verstappen á verðlaunapallinum. Verstappen var valinn ökumaður dagsins af áhorfendum.

„Ég setti mér markmið fyrir helgina, það var að ná í verðlaun á Suzuka. Það tókst. Þegar dreifðist úr keppendum var lítið að frétta hjá mér þangað til Valtteri [Bottas] veitti mér keppni undir lokin svo það lífgaði upp á loka hringina,“ sagði Daniel Ricciardo á verðlaunapallinum.

„Lewis ók góða keppni og fór varlega með dekkin. Ferrari ók góða keppni með Kimi Raikkonen og þeir sýndu hvað þeir geta,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins og þrefaldur heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1.

Kimi Raikkonen ók vel í dag á Ferrari bílnum. Hann tók fram úr talsverðum fjölda ökumanna og vann sig að endingu úr 10. sæti í það fimmta.Vísir/Gstty
„Okkur hefur gengið vel að þróa bílinn undanfarið og það er öllu okkar starfsfólki að þakka sem fórnar tíma með fjölskyldum sínum til að gera okkur kleift að berjast. Við eigum að geta barist í öllum keppnum sem eftir eru á tímabilinu,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull.

„Óheppni Ferrari er ótrúleg. Lewis ók frábæra keppni í dag. Það er frábært að sjá að við getum átt svona keppnir. Það er ekkert sem var að hrjá Lewis undir lokin. Hann var bara búinn að slá aðeins af til að spara vél og dekk og þá fannst honum eitthvað vera að sem ekki var. Valtteri [Bottas] var góður í dag, hann kom vel til baka eftir refsinguna á ráslínu,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Okkur er ætlað að vera gagnrýnin. Við sem lið höfum náð frábærum árangri í ár. Eina sem við getum gert er að stíga upp, nú tökum við okkur smá hvíld og komum svo sterkari til baka í þeim fjórum keppnum sem eru eftir,“ sagði Sebastian Vettel eftir að hann hafði fallið úr keppni.

„Ég veit ekki hvort við erum með annan besta bílinn, ég ók bara mínum bíl í dag. Það er öruggt að við þurfum að bæta áreiðanleikan en það er gefið,“ sagði Kimi Raikkonen sem endaði í fimmta sæti á Ferrari bílnum.

„Keppnisáætlunin var góð og hún gekk upp í dag. Það var gaman af þessu, hins vegar var synd að við gátum ekki losað okkur við Red Bull bílinn í undir lokin og náð í verðlaun,“ sagði Valtteri Bottas sem varð fjórði í dag á Mercedes.


Tengdar fréttir

Hamilton: Hver einasti hringur var góður

Lewis Hamilton á Mercedes náði sínum fyrsta japanska-ráspól í dag. Hann hefur þá náð ráspól á öllum þeim brautum sem eru í notkun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×