Innlent

Dr. Sæmundur Sveinsson skipaður í stöðu rektors LBHÍ

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri
Frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri Vísir/Pjetur
Kristján Þór Júlíusson, mennta og menningarmálaráðherra, hefur skipað dr. Sæmund Sveinsson í stöðu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands að fenginni tillögu háskólaráðs skólans. Sæmundur er ráðin til eins árs frá og með 1. október 2017.

Sæmundur útskrifaðist með BS próf frá líffræðideild Háskóla Íslands í júní 2007 og lauk mastersprófi frá sömu deild sumarið 2009. Hann varði doktorsritgerð sína frá grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada árið 2014. Doktorsritgerð Sæmundar ber titilinn “Investigations of plant genome evolution using massive parallel sequencing”, en á íslensku nefnist hún „Þróun plöntuerfðamengja könnuð með næstu kynslóðar raðgreingartækni“.

Á árunum 2010 til 2014 var Sæmundur aðstoðarkennari við grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Eftir að hann lauk doktorsnámi hefur hann starfað sem sérfræðingur við auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands og unnið meðal annars við byggrannsóknir í samnorrænu PPP (Public Private Partnership) verkefni, sem snýst um að bera saman norrænar kynbótalínur af byggi og kanna erfðafræðilegan fjölbreytileika þeirra - einkum með tilliti til eiginleika sem hafa áhrif á sjúkdómsþol og flýti.

Einnig hefur hann kennt í Háskóla Íslands, Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og við Landbúnaðarháskólann. Hann hefur setið í erfðanefnd landbúnaðarins fyrir hönd Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×