Innlent

Konan sem lést var á fimmtugsaldri

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Konan sem lést eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás á heimili sínu við Hagamel í gærkvöldi var á fimmtugsaldri. Hún var úrskurðuð látin á Landspítalanum. Konan var af erlendu bergi brotin.

Tveir menn voru handteknir í íbúðinni. Annar þeirra er erlendur ríkisborgari og var hann gestkomandi en hinn er Íslendingur á þrítugsaldri og búsettur í húsinu ásamt konunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni þar sem segir einnig að rannsókn lögreglu sé skammt á veg komin og ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Í samtali við Vísi í morgun sagði Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að grunur væri um að áhaldi eða vopni hefði verið beitt við árásina.

Mennirnir tveir verða  yfirheyrðir í dag en ekki liggur fyrir hvort að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim.


Tengdar fréttir

Manndráp á Melunum

Tveir menn eru í haldi lögreglu og annar sér í lagi grunaður um líkamsárás sem leiddi til dauða konu í vesturbænum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×