Þegar öll kurl séu komin til grafar fái Landspítalinn minna en ekkert Anton Egilsson skrifar 23. september 2017 12:58 Páll Matthíasson, forstjóri LSH. Mynd/Landspítalinn
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir að ekki sé allt sem sýnist varðandi þá þrettán milljarða sem renna aukalega til heilbrigðisþjónustunnar samkvæmt framlögðu fjárlagafrumvarpi næsta árs. Lýsir hann áhyggjum sínum í pistli á vef Landspítalans. Páll segir að það hafi mátt skilja á mörgum að um væri að ræða innspýtingu í kerfið en svo væri ekki nema að hluta. „Þarna er að miklum hluta um að ræða fé til að mæta verðlagsþróun og launahækkunum en einnig fé til annarra hluta kerfisins. Það sem rennur til Landspítala er hins vegar minna en ekkert þegar öll kurl eru til grafar komin, sem er alvarlegt.“Þurfa töluvert meira féHann segir jafnframt að sá óstöðugleiki sem ríki á stjórnmálasviðinu, þar sem efnt hefur verið til kosninga án þess að afgreiða fjárlög, geri ríkari kröfur til mikilvægra stofnana eins og Landspítala að sinna sínum skilgreindu verkefnum af ábyrgð og festu. „Er ljóst að næstu vikur og mánuðir munu verða afdrifaríkur tími fyrir spítalann og raunar heilbrigðiskerfið allt. Búast má við því að í kosningabaráttunni sem framundan er verði heilbrigðismálin enn ofarlega á baugi. Verkefni okkar á spítalanum er að gera almenningi og fulltrúum þeirra, stjórnmálamönnum, grein fyrir stöðu heilbrigðismála eins og þau snúa að Landspítala. Segir Páll að það liggi fyrir af hálfu Landpítala að töluvert meira fé þurfi til rekstrar spítalans heldur en gert er ráð fyrir í fjármáláætlun fráfarandi ríkisstjórnar fyrir árin 2018-2022. „Við fyrstu greiningu metum við svo að það vanti um 3.000 m.kr. til að viðhalda óbreyttum rekstri á spítalanum á árinu 2018 og tryggja framgang þeirra verkefna sem við sinnum nú þegar. Þá vantar 1.200 m.kr. til viðbótar í bráðnauðsynlegt viðhald á húsnæði spítalans, 500 m.kr. til 1. áfanga endurbóta á húsnæði geðsviðs og 1.000 m.kr. aukalega í nauðsynleg tækjakaup.“.
Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Sjá meira