Innlent

Lögreglan hefur upplýst skartgriparán

Birgir Olgeirsson skrifar
Einn karlmaður og tvær konur voru einnig handteknar vegna gruns um að hafa veitt þýfi móttöku.
Einn karlmaður og tvær konur voru einnig handteknar vegna gruns um að hafa veitt þýfi móttöku. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst rán sem hún hafði til rannsóknar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en fyrr í mánuðinum var lögregla kölluð til á heimili í Reykjavík en þar hafði maður rænt skartgripum af eldri konu. Málið telst að fullu upplýst en tveir karlmenn á fertugsaldri voru handteknir vegna málsins. Einn karlmaður og tvær konur voru einnig handteknar vegna gruns um að hafa veitt þýfi móttöku. Eitthvað af skartgripunum var endurheimt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×