Handbolti

Stefán Rafn með 6 mörk í stórsigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Stefán Rafn Sigurmannsson hefur keppt á fjórum stórmótum fyrir Ísland.
Stefán Rafn Sigurmannsson hefur keppt á fjórum stórmótum fyrir Ísland. vísir/eva björk
Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur í liði Pick Szeged í sigri á Csurgói í ungversku A-deildinni í handbolta.

Szeged vann stórsigur, 36-25 og skoraði Stefán Rafn 6 mörk fyrir lið sitt.

Liðið hefur byrjað tímabilið frábærlega, og unnið alla fimm leiki sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×