Sport

Besta íþróttafólk heims í ákveðinni hæð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lebron James og Simone Biles.
Lebron James og Simone Biles. Vísir/AFP
Íþróttafólk hefur tækifæri til að skara fram úr í íþróttaheiminum þótt að það sé mishátt í loftinu.

Blaðamenn Sports Illustrated léku sér að því að velja besta íþróttafólk heimsins í hverri hæð.

Farið var eftir bandaríska mælikerfinu þar sem menn mæla hæð fólks í fetum og tommum.

Byrjað var í fjórum fetum og átta tommum (142,24 sm) og endaði í sjö fetum og þremur tommum (220,98 sm). Alls voru þetta 28 hæðarflokkar.

Sú minnsta í þessum 28 íþróttamanna hópi var hin 142 sentímetra háa fimleikastjarna og Ólympíumeistari Simone Biles.

Sá hæsti í hópnum var hinn 220,98 sentímetra hái lettneski körfuboltamaður Kristaps Porzingis.

Það þarf ekki að koma á óvart að fimleikastelpurnar hafi verið áberandi meðal þeirra lágvöxnu á listanum en körfuboltamennirnir allt í öllu þegar við vorum komin langt yfir tvo metrana.

Það má sjá þessa skemmtilegu samantekt Sports Illustrated með því að smella hér en hér fyrir neðan má sjá listann yfir þá íþróttamenn sem þóttu bestir í heimi í sinni hæð.

Fólk ætti að hafa gaman að því að finna hver sé besti íþróttamaður heims í þeirra eigin hæð.



Besta íþróttafólk heims í ákveðni hæð:



(Innan sviga er íþróttafólk sem kom líka vel til greina í umræddri hæð)

Simone Biles.Vísir/Getty
 

4 fet og 8 tommur (142,24 sm)

Simone Biles, fimleikar

4 fet og 9 tommur (144,78 sm)

Yao Jinnan, fimleikar

4 fet og 10 tommur (147,32 sm) -

Yilin Fan, fimleikar

4 fet og 11 tommur (149,86 sm)

Gabby Douglas, fimleikar

5 fet (152,4 sm)

Laurie Hernandez, fimleikar

5 fet og 1 tomma (154,94 sm)

Ashton Locklear, fimleikar

5 fet og 2 tommur (157,48 sm)

Victor Espinoza, hestar

(Aly Raisman, Meghan Klingenberg)

5 fet og 3 tommur (160,02 sm)

Aliya Mustafina, fimleikar

5 fet og 11 tommur (180,34 sm)

Sidney Crosby, íshokkí

(Odell Beckham Jr., Russell Wilson)

Lionel Messi.Vísir/Getty
 

5 fet og 4 tommur (162,56 sm)

Marta, fótbolti

5 fet og 5 tommur (165,1 sm)

Almaz Ayana, frjálsar íþróttir

(Lydia Ko)

5 fet og 6 tommur (167,64 sm)

Jose Altuve, hafnarbolti

(Megan Rapinoe, Lieke Martens, So Yeon Ryu, N’Golo Kante, Allyson Felix)

5 fet og 7 tommur (170,18 sm)

Lionel Messi, fótbolti

(Carli Lloyd, Alexis Sanchez, Alex Morgan, Dennis Kipruto Kimetto)

5 fet og 8 tommur (172,72 sm)

Eden Hazard, fótbolti

(Sergio Aguero, Angelique Kerber)

5 fet og 9 tommur (175,26 sm)

Serena Williams, tennis

(Neymar, Mo Farah, Rory McIlroy, Mookie Betts, Isaiah Thomas)

5 fet og 10 tommur (177,8 sm)

Antonio Brown, amerískur fótbolti

(Patrick Kane, Julian Edelman, Kylian Mbappe)

Katie LedeckyVísir/Getty
 

6 fet (182,88 sm)

Katie Ledecky, sund

(Chris Paul, Drew Brees, Ezekiel Elliott, Luis Suarez, Maya Moore, Gabrine Muguruza, Wayde van Niekerk)

6 fet og 1 tomma (185,42 sm)

Roger Federer, tennis

(Cristiano Ronaldo, Rafael Nadal, Jordan Spieth, Connor McDavid, Le’Veon Bell, David Johnson, Venus Williams, Ashton Eaton)

6 fet og 2 tommur (187,96 sm)

Mike Trout, hafnarbolti

(Jonathan Toews, Aaron Rodgers, Nneka Ogwumike, Kyrie Irving, Novak Djokovic)

6 fet og 3 tommur (190,5 sm)

Russell Westbrook, körfubolti

(Alex Ovechkin, Steph Curry, Max Scherzer, Von Miller, Julio Jones, Andy Murray, Tina Charles)

6 fet og 4 tommur (193,04 sm)

Tom Brady, amerískur fótbolti

(Clayton Kershaw, Breanna Stewart, Dustin Johnson, Manuel Neuer, Candace Parker, Kieran Read)

6 fet og 5 tommur (195,58 sm)

J.J. Watt, amerískur fótbolti

(James Harden, Elena Delle Donne, Kris Bryant, Cam Newton)

6 fet og 6 tommur (198,12 sm)

Chris Sale, hafnarbolti

(Giancarlo Stanton, Julio Jones, Rob Gronkowski)

6 fet og 7 tommur (200,66 sm)

Kawhi Leonard, körfubolti

(Aaron Judge, Draymond Green, Andrew Miller)

LeBron James.Vísir/Getty
 

6 fet og 8 tommur (203,2 sm)

LeBron James, körfubolti

6 fet og 9 tommur (205,74 sm)

Kevin Durant, körfubolti

(Paul George)

6 fet og 10 tommur (208,28 sm)

Kevin Love, körfubolti

(Blake Griffin)

6 fet og 11 tommur (210,82 sm)

Anthony Davis, körfubolti

(Giannis Antetokounmpo, DeMarcus Cousins, De’Andre Jordan)

7 fet (213,36 sm)

Karl-Anthony Towns, körfubolti

(Andre Drummond, Hassan Whiteside, Dirk Nowitzki)

7 fet og 1 tomma (215,9 sm)

Marc Gasol, körfubolti

7 fet og 2 tommur (218,44 sm)

Alexis Ajinca, körfubolti

7 fet og 3 tommur (220,98 sm)

Kristaps Porzingis, körfubolti

Kristaps Porzingis.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×