Handbolti

Elvar dæmdur í bann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar í leiknum gegn Stjörnunni.
Elvar í leiknum gegn Stjörnunni. vísir/eyþór
Aganefnd HSÍ hefur úrskurðað Elvar Ásgeirsson, leikmann Aftureldingar, í eins leiks bann.

Elvar fékk útilokun með skýrslu vegna brots í leik Aftureldingar og Stjörnunnar í 3. umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. Elvar braut þá á Stjörnumanninum Leó Snæ Péturssyni í hraðaupphlaupi.

Elvar tekur út leikbannið þegar Afturelding sækir Fram heim á morgun.

Elvar skoraði 12 mörk í fyrstu þremur leikjum Aftureldingar á tímabilinu.

Afturelding situr í 10. sæti Olís-deildarinnar með eitt stig. Liðið bíður enn eftir sínum fyrsta sigri á tímabilinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×