Innlent

Brýnt að ná góðum tengslum við breska ráðamenn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðlaugur Þór flaug utan í gærmorgun eftir að þingi var slitið á Alþingi.
Guðlaugur Þór flaug utan í gærmorgun eftir að þingi var slitið á Alþingi. Vísir/Vilhelm
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hélt ávarp í gær við opnun breskrar hugveitu sem ber heitið Stofnun frjálsra viðskipta. Hann átti við það tækifæri tvíhliða fund með Liam Fox, sem er ráðherra yfir málum milliríkjaviðskipta í bresku ríkisstjórninni. „Það sem við vorum að ræða var tvíhliðasamskipti Íslands og Bretlands við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu,“ segir hann.

Guðlaugur Þór segir þetta hafa verið forgangsmál hjá utanríkisráðuneytinu frá því að Bretar samþykktu að ganga úr Evrópusambandinu.

„Enda er þetta næstmikilvægasta viðskiptaland okkar Íslendinga á eftir Bandaríkjunum. Við höfum lagt mikið upp úr því að ná góðum tengslum við breska ráðamenn og sömuleiðis æðstu embættismenn og þetta er bara liður í því,“ segir Guðlaugur Þór.

Breskir fjölmiðlar segja hugveituna vera nokkurs konar samfélag harðlínu-Brexit sinna. Guðlaugur Þór segist ekki taka afstöðu til breskra stjórnmála. „Boris Johnson bauð mér á þennan fund en það er ekki þar með sagt að ég sé að taka einhverja afstöðu í einhverjum málum innan breska Íhaldsflokksins. Það er mikil umræða um Brexit hérna í Bretlandi en ég er ekki að taka þátt í þeim umræðum og það var ekki til umræðu á þessum fundum.

Hann segir heimsóknina einkum vera lið í því að undirbúa samskiptin við Breta eftir Brexit.

„Ég er búinn að hitta núna alla þá ráðherra sem að þessum málum koma hjá Bretum en ég átti eftir að hitta Liam Fox. Það hefur staðið yfir nokkuð lengi og þetta var kjörið tækifæri til að setjast niður með honum.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×