Innlent

Lögreglan heimsækir atvinnurekendur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan er í átaki gegn svartri atvinnustarfsemi.
Lögreglan er í átaki gegn svartri atvinnustarfsemi. Vísir/Vilhelm
Átak gegn ólöglegri atvinnustarfsemi stendur nú yfir í umdæmum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og lögreglunnar á Suðurnesjum. Markmið átaksins er að ganga úr skugga um hvort einhverjir atvinnurekendur séu með fólk í vinnu án tilskilinna leyfa.

Jafnframt er lagt mat á lögmæti dvalar útlendings, svo og athugað hvort lögbundnar skatt- og gjaldgreiðslur séu til staðar.

Að verkefninu koma lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, lögreglan á Suðurnesjum, Ríkisskattstjóri, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að atvinnurekendur geti því gert ráð fyrir að fyrirtæki þeirra verði sótt heim af fulltrúum ofangreindra stofnana án fyrirvara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×