Innlent

Sigmundur Davíð í beinni í fréttum Stöðvar 2

Hrund Þórsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð verður í viðtali í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2, klukkan 18.30 í kvöld.
Sigmundur Davíð verður í viðtali í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2, klukkan 18.30 í kvöld.
Áhrifafólk innan Framsóknarflokksins segir flokkinn nú ganga í gegnum versta klofning í hundrað ára sögu flokksins og hefur mikill fjöldi áhrifafólks sagt sig úr honum undanfarna daga.

Í dag tilkynnti svo Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúi flokksins sem nýlega stofnaði Samvinnuflokkinn, að hann og fólk í þeim flokki hefði gengið til liðs við Sigmund Davíð Gunnlaugsson,  fyrrverandi formann Framsóknarflokksins og forsætisráðherra.

Rætt verður ítarlega við Sigmund Davíð í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö í kvöld. Fréttir verða að vanda í opinni dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×