Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Formaður Framsóknarflokksins segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson hafa misst traust þjóðarinnar og fólks innan Framsóknarflokksins vegna Wintrismálsins og Panama skjalanna.

Nýr flokkur Sigmundar Davíðs, sem ber nafnið Miðflokkurinn, mælist með sjö prósenta fylgi samkvæmt nýrri könnun, en ítarlega verður rætt við Sigmund í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.

Þar kynnum við okkur líka stöðu mála á Austurlandi þar sem úrkoma hefur valdið miklum vandkvæðum og heimsækjum fjóra kettlinga sem bjuggu við vanrækslu á sveitabæ en hefur nú verið komið í öruggar hendur.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×