Innlent

Tekinn í Leifsstöð með tvö kíló af kókaíni í ferðatöskunni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kókaínið var falið í fóðri í ferðatösku mannsins.
Kókaínið var falið í fóðri í ferðatösku mannsins. vísir/anton brink
Íslenskur karlmaður sem grunaður er um að hafa komið að innflutningi á rúmum tveimur kílóum af kókaíni situr nú í gæsluvarðhaldi. Þrír hafa sætt gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp en tveir þeirra hafa verið látnir lausir að því er fram kemur í tilkynningu frá lögrelgunni á Suðurnesjum.

Þar segir að forsaga málsins sé sú að tollverðir hafi seinni hluta ágústmánaðar stöðvað íslenskan karlmann á sextugsaldri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar hann var að koma til landsins frá Spáni.

Í farangri hans hafi fundist rúm tvö kíló af kókaíni sem falin voru í fóðri í ferðatösku hans. Hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Lögreglan á Suðurnesjum hóf rannsókn á málinu og voru í kjölfarið handteknir tveir menn á fimmtugsaldri, grunaðir um fjármögnun og skipulag innflutnings á efnunum. Annar hinna síðarnefndu sætir enn gæsluvarðhaldi, að því er segir í tilkynningunni, en rannsókn málsins er á lokastigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×