Enski boltinn

Mourinho: Pogba verður lengi frá

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pogba er hann meiddist gegn Basel.
Pogba er hann meiddist gegn Basel. vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, staðfesti á blaðamannafundi sínum í dag að meiðsli miðjumannsins Paul Pogba væru alvarleg.

Mourinho sagði að Pogba yrði lengi frá vegna meiðslanna og vildi ekkert skjóta á hvenær Pogba ætti möguleika á því að snúa til baka. Portúgalinn sagði að meiðslin væru alvarleg eins og hjá Zlatan Ibrahimovic og Marcos Rojo.

Pogba meiddist í Meistaradeildarleiknum gegn Basel en hann haltraði þá af velli eftir nítján mínútna leik.

Í fyrstu var talið að hann yrði frá í um sex vikur en nú er ljóst að hann verður lengur frá en það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×